Thursday, July 17, 2008

Húmbúkk

Halló Þjóðkirkja. Þyrftu sumir að fara að skafa úr eyunum eða hvað?

Hvernig hljómar nú aftur annað boðorðið?
Jú: Þú skalt ekki leggja nafn Drottins Guðs þíns við hégóma.
Ekki satt?

Og hvað gerið þið pokaprestar og roðhæsn? Bjóðið upp á árlega hégómavertíð, þar sem krökkum er lofað tölvum og æpoddum og allskonar húmbúkki öðru, út á það að gúlla í sig einni obblátu með vondu víni.

Ekki nóg með það, heldur er þessi volaða hlutleysiskirkja ykkar rekin með skatttekjum þjóðar sem hreinlega gengur á innantómri yfirborðsmennsku. Gerið þið ykkur grein fyrir því, landeyðurnar ykkar að þessi fégíruga ríkisstjórn hefur mulið undir kirkjuna með því að leyfa það að árnar sem ÉG, Drottinn hersveitanna skapaði, séu virkjaðar í þágu viðbjóðslegra stórfyrirtækja sem svo sannarlega hafa unnið mínum minnstu bræðrum skaða. Kárahnjúkavirkjun reis án þess að kirkjan sæi einu sinni sóma sinn í því að afþakka frekari ríkisstyrki og nú þegar allt útlit er fyrir að Landsvirkjun takist áð láta viðurstyggð eyðingarinnar ríða yfir Þjórsárver, þá bara haldið þið áfram að blogga eitthvert kærleiksklístur.

Viljayfirlýsing dagsins er þessi:
Ég vil að þið steinhættið þessu hégómarunki úti um allan bæ. Slítið þegar í stað samband ríkis og kirkju svo kirkjan sé örugglega ekki rekin fyrir fé sem er aflað í þágu hégómleikans með misgeðslegum aðferðum. Og neitið að ferma börn nema þau séu sannkristin og eigi engan hégóma í vændum fyrir að skrá sig.

Wednesday, July 16, 2008

Nóg komið

Djöfull er ég pirraður í dag. Það er sama hvert litið er, það er bara engu líkara en að fólk sé gjössamlega búið að gefa skít í vilja minn. Konur þenjandi sig á þingi, karlhórar giftandi sig öðrum körlum, fólk étandi beikon og alls konar solleis ógéð, allskonar undarlegir náungar girnast asna einhverra annarra náunga og svo þykist bara enginn vita neitt hvað ég meina með boðorðunum og bibblíunni.

Sko! nú er nóg komið og hananú. Hér eftir mun ég blogga um vilja minn, jafnóðum.

Það fyrsta sem ég vil er að menn hætti að hafa aðra guði og þá einkum og sér í lagi þetta hlandstaðna afbrigði af kærleiksbirni sem flestir prestgemlingar halda á lofti. Umburðarlyndi og fyrirgefning, minn rass, hvaða gamlatestamenti lærði þetta lið eiginlega í barnaskóla? Finnst þessum fábjánum að ÉG, ég sjálfur Drottinn Guð, sem leiddi Ísrael út út Egyptalandi, sé líklegur til að leyfa eitthvert viðbjóðslegt hommarí í mínum húsum? Þér armæðufullu obblátudreifarar, þér hafið haft vilja vorn að engu, en hlýtt því meir á handbendi Djöfulsins, í þessu tilviki nokkrar trukkalessur sem sitja á grjótskeri úti í ballarhafi, rífandi kjaft.

Verkefni ykkar í dag er að drepa alla karlhóra í landinu enda á ykkur að vera fullkunnugt um að þeir eru Guði viðurstyggð. Skammist svo heim til yðar og gjörið iðrun. Slátrið kálfi eða eitthvað svoleiðis. Eða allavega hundi. Farið svo og boðið lýðnum trú á hinn rétta Guð, MIG, Drottinn hersveitanna sem leiddi Ísrael út af Egypalandi.